|
Námur Salomons |
|
BloggNámur á ferð og flugi... 2.1.2010Fyrsti dagur ársinsÉg hef sjaldan verið með áramótaheit í kollinum. En þess oftar hef ég frekar ,,núllstillt" líf mitt á áramótum. Þ.e.a.s. frekar ákveðið að skilja gamla árið eftir og byrja upp á nýtt. Í dag hef ég þá t.d. ekki klúðrað neinu og ekki klaufast neitt. Í dag hef ég ekki heldur unnið neina sigra í lifinu. Ég hef ekkert nöldrað í konunni og ekkert farið í taugarnar á ,,Hundinum". Ekkert mætt of seint neinstaðar og ekki heldur gleymt að mæta eitthvert. Eina sem ég hef gert af mér á þessu ári er að byrja að blogga án þess að láta neinn vita. Það er líka allt í lagi því að ég ætla að blogga fyrir sjálfan mig og konuna. Ég ætla líka að skálda heilan helling hérna og er nú þegar byrjaður á því. Þannig að það er fínt að það viti ekki neinn af þessu. Kannski týnist inn einn og einn lesandi. Aldrei að vita og það bara í fínu lagi. Í dag höfum við konan mín ekki gert neitt, nema að elda. Hún að vísu eldaði, ég sat og horfði á. Jú, ég setti spaghettí í pott. Hún sá svo um restina. Svaka dugleg. Hundurinn svaf í skrifstofustólnum mínum mest allan daginn. Ég var heppinn að fá að fara í tölvuna í kvöld og fá að sitja í stólnum. Ég var að reyna að vera með uppgjör í huganum á árinu 2009, það gekk ekki vel, því að ég man varla hvað gerðist á árinu. Ruglaði oft saman við hvað gerðist árið 2008. Það voru samt nokkrir hlutir sem stóðu upp úr. Svo sem eins og ferð til Vestfjarða, fórum alla leið til Súðavíkur. Það gerði ég til þess að gera upp gamla fortíð. Borðaði á veitingastað sem heitir Amma Habbý. Bróðir minn átti þennan stað hér áður fyrr er hann var bensínstöð, ásamt konu sinni, henni Habbý. Þau dóu síðan í Snjóflóðinu sem engin Íslendingur er búinn að gleyma. Dóttir þeirra opnaði svo þennan stað, sem veitingastað í fyrra, að mig minnir. Frá Súðavík fórum við síðan til Tálknafjarðar og hittum Hönnu, Þröst og Jósa. Það var hörku gaman. Fórum síðan aftur til Reykjavíkur daginn eftir í samfylgd Hönnu og Þrastar. Á eins árs brúðkaupsafmælinu fórum við á Hótel Hamar. Þar sem veislan var haldinn. Biggi og Rósa, systkyni mín komu þangað og borðuðu með okkur kvöldverð. Já, heyrðu, þá rifjast það upp! Helgarnar á undan reyndum við að fara aftur upp á Snæfellsjökul, en það viðraði ekki til þess. Sem minnti okkur Arndísi á að við vorum ekkert smá heppinn með veðrið á brúðkaupsdaginn í fyrra! Í einni af tilraununum að fara upp á jökul, þá gistum við aftur á Hótel Hamri með Hönnu og Þresti. Það var þokkalega gaman líka. Æ, þar sem ég nenni ekki að skrifa meira í kvöld þá kveð ég hér og nú og segi Gleðilegt ár! Flettingar í dag: 17 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 23 Gestir í gær: 7 Samtals flettingar: 47419 Samtals gestir: 16126 Tölur uppfærðar: 18.3.2010 15:08:32 Flokkar: |
Vafraðu umNámur Salomons Nafn: SalomonAfmælisdagur: 0607Önnur vefsíða: http://salomon.vortex.isUm: AÐVÖRUN: Það er ekki gott ráð að taka mark á þessari síðu því hún mun flakka ótæpilega á milli hins raunverulega og óraunverulega.clockhere Eldra efni |